Dinner and a movie – með Roger Solomon
3. febrúar, 2021 @ 15:00 - 21:00
| ISK18.000Námskeiðið
Þann 3. febrúar næstkomandi mun Roger Solomon, Ph.D., bjóða upp Zoom námskeið fyrir EMDR meðferðaraðila.
Á þessu námskeiði sýnir hann ýmis myndbönd af vinnu sinni með skjólstæðinga með flókin áföll og útskýrir hvað hann var að gera, hvernig aðferðum hann beitti, og hvernig þróunin hefur verið í meðferð viðkomandi einstaklinga.
Öll myndböndin hafa verið tekin með leyfi viðkomandi einstaklinga sem hafa einnig veitt leyfi fyrir því að þau séu notuð í kennslu annarra meðferðaraðila.
Ef við á, mun Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur, viðurkenndur EMDR meðferðaraðili og handleiðari koma einnig með útskýringar jafnóðum í “chat” á hvaða verkfærum hann er að beita, tilgangi þeirra, og þ.h. Sem dæmi – tímaáttun, realization, personification, reducing phobia between EPs, between ANP and EP, o.fl.
Fyrir hverja
- Athugið að þetta er eingöngu fyrir meðferðaraðila sem hafa lært EMDR meðferð
Tímasetning
- 3. febrúar 2021 frá kl. 15 til 21
Verð
- 18.000 kr.
Staðsetning
- Á Zoom
Skráning
- Skráning fer fram hjá Gyðu Eyjólfsdóttur á netfanginu [email protected]