Unnið með parta: Námskeið fyrir EMDR meðferðaraðila í að auka stöðugleika og auðvelda úrvinnslu hjá skjólstæðingum með mikla áfallasögu
5. nóvember, 2021 - 6. nóvember, 2021
| kr.75.000Athugið, takmarkaður þátttakendafjöldi!
Föstudagur 5. nóv 2021, kl. 14-19
Laugardagur 6. nóv 2021, kl. 9 til 16
Staðsetning: EMDR stofan, Vallakór 4, 3. hæð, 203 Kópavogur
Klínískar leiðbeiningar mæla með partavinnu í meðferð skjólstæðinga með alvarleg hugrofseinkenni https://www.isst-d.org/resources/adult-treatment-guidelines/
Námskeiðið gagnast EMDR meðferðaraðilum meðal annars þegar:
- Unnið er með skjólstæðinga með hugrofseinkenni
- Skjólstæðingur fer út fyrir þolmörk í úrvinnslu eða í undirbúningi undir úrvinnslu
- Skjólstæðingur glímir við mikinn óstöðugleika í daglegu lífi
- Skjólstæðingur hefur fóbíu fyrir áfallaefninu
- Skjólstæðingur er með hugsanavillur (cognitive errors) sem lítið er hægt hreyfa við
- Skjólstæðingur virðist vera fastur í áfallinu
- Lítið virðist vera að gerast í EMDR úrvinnslu
- Skjólstæðingur finnur ekki líðan í líkama
- Það er mikill kvíði fyrir úrvinnslu
- Ekkert hreyfist í úrvinnslunni
- O.fl.
Á námskeiðinu verður farið í Theory of Structural Dissociation til að kenna:
- Hvernig partar verða til
- Apparently Normal Part of the Personality / Emotional Part of the Personality (ANP/EP)
- Varnir
- Personification
- Realization
Einnig verður farið í hvernig dissociation / hugrof getur litið út í viðtali og milli viðtala.
Þá verður kennd svokölluð Fundarherbergisvinna / Dissociative Table Technique þar sem unnið er með parta
- Þolmörk – Window of tolerance
- Stöðugleikavinna
- Tímaáttun parta
- Fóbía milli parta
- Hugsanaskekkjur – Cognitive errors
- Unnið að samvinnu milli parta
- Unnið að fá samþykki fyrir úrvinnslu
Einnig verður farið yfir samþættingu fundarherbergisvinnu við EMDR meðferð og hvernig hún getur stutt við undirbúning undir EMDR meðferð og einnig í EMDR úrvinnslu. Til viðbótar verður rætt um CIPOS aðferðina með Back of the Head Scale, EMD, EMDr, fingertip processing og fleiri gagnleg verkfæri sem hægt er að nýta í vinnu með hugrof í fasa 2 (undirbúningsfasa) í EMDR meðferð.
Þátttakendum verður sent lesefni sem nauðsynlegt er að hafa kynnt sér fyrir námskeiðið.
Uppsetning námskeiðs:
Föstudagur – fyrirlestur og umræður, ásamt undirbúningi undir verklegar æfingar.
Laugardagur – fyrirlestur og umræður, verklegar æfingar, farið yfir dæmi um hugrofsvinnu með skjólstæðingum.
Í verklegum æfingum verður unnið í þriggja manna hópum þar sem allir aðilar fá tækifæri til að vera meðferðaraðili, skjólstæðingur og áhorfandi. Hóparnir vinna ofangreinda fundarherbergisvinnu undir handleiðslu leiðbeinenda. Athugið ef einhver vill ekki vera skjólstæðingur í þessari vinnu þá er hægt að taka tillit til þess.
Leiðbeinendur:
Gyða Eyjólfsdóttir, Ph.D., sálfræðingur, EMDRIA og EMDR Europe certified therapist in EMDR therapy, EMDRIA og EMDR Europe viðurkenndur handleiðari í EMDR meðferð og EMDR Institute Facilitator.
Margrét Blöndal, hjúkrunarfræðingur, EMDRIA og EMDR Europe certified therapist in EMDR therapy, EMDRIA og EMDR Europe viðurkenndur handleiðari í EMDR meðferð og EMDR Institute Facilitator.
Skráning fer fram á netfanginu [email protected] og er skráningarfrestur til 22. október 2021. Skráningu þarf að fylgja nafn þátttakanda, gsm númer og netfang, kennitala greiðanda, ósk um hádegismat frá Pure Deli https://puredeli.is/matsedill/
Athugið, takmarkaður þátttakendafjöldi.
Verð er 75.000 kr. Innifalið í verði er hádegismatur á laugardeginum, kaffi, te og meðlæti báða dagana.
Ef spurningar vakna má senda póst á [email protected] eða [email protected]