EMDR áfallameðferð – Weekend 1

Þann 29. september til 1. október  næstkomandi verður haldið fyrra námskeið af tveimur (level 1) í EMDR áfallameðferð.  Námskeiðið felst í fyrirlestrum, vídeóum með dæmum um notkun aðferðarinnar, sýnikennslu auk þess sem þátttakendum er gefinn kostur á því að æfa sig í notkun aðferðarinnar  undir handleiðslu, í þriggja manna hópum.