window.dataLayer = window.dataLayer || []; function gtag(){dataLayer.push(arguments);} gtag('js', new Date()); gtag('config', 'UA-147953592-1');

Master class námskeið fyrir EMDR meðferðaraðila

2026-03-20T00:00:00+00:00
Loading Events

Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur og hæfnivottaður EMDR handleiðari kynnir sjö mánaða Master class námskeið fyrir EMDR meðferðaraðila sem kunna partavinnu og hafa áhuga á að dýpka sig í EMDR úrvinnslum og partavinnu í gegnum sýnikennslu, umræður, handleiðslu og persónulega vinnu.

Þetta Master class námskeið verður á Zoom, einn dag í mánuði frá október 2024 til og með apríl/maí 2025. Þátttakendum verður skipt upp í pör og rótera sem meðferðaraðili og skjólstæðingur þar sem skjólstæðingurinn vinnur með það sem hann vill vinna hverju sinni. Þannig fá þátttakendur tækifæri á persónulegri vinnu og æfa sig í meðferðarvinnu undir handleiðslu. Þá taka tveir þátttakendur þátt í sýnikennslu í hvert skipti þar sem Gyða vinnur með þá fyrir framan hópinn. Aðaláherslan á námskeiðinu er á djúpa, persónulega vinnu, og á að fínpússa færni í EMDR meðferð og partavinnu.

 

Kröfur til þátttakenda:
• Hafa lokið grunnþjálfun í EMDR meðferð (W1, W2, auk handleiðslu eftir námskeið).
• Að minnsta kosti tveggja ára reynslu af notkun EMDR meðferðar.
• Hafa verið í handleiðslu á EMDR meðferðarvinnu.
• Hafa setið námskeið í Theory of Structural Dissociation (partavinnu).

 

Áætluð dagskrá hvers dags
09:00 – 09:30 Tekin staðan á þátttakendum og fundnir sjálfboðaliðar í sýnikennslu
09:30 – 10:30 Sýnikennsla og umræður
10:30 – 10:45 Hlé
10:45 – 12:15 Meðferðarvinna þátttakenda 90 mín
12:15 – 13:00 Hádegishlé
13:00 – 14:00 Sýnikennsla og umræður
14:00 – 15:30 Meðferðarvinna þátttakenda 90 mín
15:15 – 16:00 Umræður og lokun

 

Hópur 1
30. október 2024
13. nóvember 2024 Styttra á milli til að hópurinn kynnist hratt
4. desember 2024
8. janúar 2025
5. febrúar 2025
12. mars 2025
30. apríl 2025 (lengra á milli út af páskum)

Hópur 2

11. nóvember 2024

2. desember 2024

13. janúar 2025

3. febrúar 2025

10. mars 2025

28. apríl 2025

19. maí 2025

Staðfesting
Eftir Master class námskeiðið fá þátttakendur staðfestingu á þátttöku þar sem fram kemur fjöldi heildarstunda á námskeiðinu og fjöldi meðferðartíma í persónulegri meðferð.

 

Skráning, verð og greiðslufyrirkomulag
Skráning er til og með 23. október næstkomandi. Hámarksfjöldi þátttakenda í hvorum hóp er 10 EMDR meðferðaraðilar. Við skráningu skuldbinda þátttakendur sig til að taka þátt í öllu námskeiðinu, ekki er hægt að skrá sig á tiltekna daga en ekki aðra. Hver þátttakandi á sitt pláss á námskeiðinu og þarf því að greiða fyrir það, óháð því hvort hann mætir eða ekki. Það verður tekið tillit til þess einu sinni fyrir hvern þátttakanda ef hann nær ekki að mæta. Það er, í fyrsta skipti sem viðkomandi getur ekki mætt greiðir hann ekki fyrir skiptið. Verði fleiri forföll þarf að greiða fyrir þau skipti.

Verðið fyrir námskeiðið er 336.000 kr (48.000 hvert skipti). Hægt er að greiða í einni greiðslu eða skipta greiðslum.

Stefnt er á para þátttakendur saman og halda þeirri pörun út námskeiðið, þannig ná þátttakendur dýpri vinnu. Ef það verða forföll getur verið að þátttakandi þurfi að vinna með öðrum þátttakanda eða öðru pari. Ef það verður 3ja manna hópur í eitthvert skipti, þarf a.m.k. einn úr þeim hóp að vera sýnidæmi þann daginn svo allir fái úrvinnslu. Ef það verða forföll getur verið að þátttakandi þurfi að vinna með öðrum þátttakanda eða öðru pari.

Til að skrá sig má senda tölvupóst á Gyðu á netfangið [email protected]

Deildu á samfélagsmiðla

Go to Top