Oddný Jónsdóttir veitir meðferð fyrir fullorðna, pör og fjölskyldur.
Oddný er félagsráðgjafi,M.A, fjölskyldumeðferðarfræðingur, faglegur handleiðari, EMDR meðferðaraðili og aðjunkt við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Oddný er að taka ný mál og er með opin biðlista.
Helstu viðfangsefni:
- EMDR meðferð
- Einstaklingsmeðferð
- Para og fjölskyldumeðferð
- Hópmeðferð
- Handleiðsla fyrir fagaðila
- Handleiðsla fyrir vinnustaði og stjórnendur
Helstu meðferðarform:
- EMDR áfallameðferð (Eye Movement Desensitization and Reprocessing)
- Díalektisk atferlismeðferð (DAM)
- Tengslamiðuð parameðferð (Emotionally Focused Couples and Family Therapy)
- Gottman Method of Relationship Therapy
- Núvitund og öndun
Oddný hefur verið að vinna töluvert með ungmennum hjá Berginu Headspace.
Einnig hefur hún verið að sinna meðferðarvinnu einstaklinga í sjálfsskaða og sjálfsvígshættu hjá Píeta samtökunum ásamt sorgarúrvinnslu fyrir aðstandendur.
Oddný hefur verið að taka þátt í sjö mánaða Master class námskeiði fyrir EMDR meðferðaraðila á Íslandi þar sem hún hefur verið að dýpka áhuga og hæfni á EMDR úrvinnslum og partavinnu í gegnum sýnikennslu undir handleiðslu Gyðu Eyjólfsdóttur.
Einnig er Oddný aðjúnkt við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands þar sem hún kemur að kennslu á meistarastigi og kennir m.a viðtalstækni ásamt því að sinna rannsóknum.
